07.05.1921
Efri deild: 64. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1314 í B-deild Alþingistíðinda. (1257)

41. mál, fjárlög 1922

Karl Einarsson:

Líkingin, sem háttv. frsm. (S. H. K.) tók síðast, er nokkuð hölt, því að heimild til þess að brúa Eyjafjarðará er komin í sjerstök lög, og verður verkið framkvæmt þegar fært þykir, en vitarnir hafa nú verið teknir upp í fjárlagafrv.