28.02.1921
Neðri deild: 10. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í B-deild Alþingistíðinda. (130)
43. mál, sendiherra í Kaupmannahöfn
Jón Þorláksson:
Því hefir verið haldið hjer fram, sem meðmælum með þessu frv., að það væri óaðgengilegt fyrir menn að taka að sjer stöðu, sem ekki væri með lögum trygð. Þessi ástæða finst mjer ekki rjettmæt. Margar stöður hjer á landi hafa ekki verið skipaðar með lögum, heldur veitt til þeirra fje í fjárlögunum áratugum saman, svo sem forstjórn vegamála, vitamála, og fleira, og hefir ekki sýnt sig, að mannaskifti hafi þar orðið fyrir þá sök, að ekki væri þetta lögtrygðar stöður. Mjer kemur því alls ekki í hug, þótt frv. þetta fjelli, að af því hlytist nokkur breyting á framkvæmd starfsins, meðan sami maður vill gegna því með óbreyttum kjörum.