14.05.1921
Neðri deild: 70. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1379 í B-deild Alþingistíðinda. (1301)
41. mál, fjárlög 1922
Stefán Stefánsson:
Jeg get verið háttv. frsm. (B. J.) þakklátur fyrir undirtektir hans undir mína till. Annars þarf jeg ekki að vera langorður, en vil aðeins víkja örfáum orðum að skólahúsmálinu í Glæsibæjarhreppi, í sambandi við þann skilning, er ýmsum á óvart á nú að leggja inn í ákvæði þau, sem hjer um ræðir. Þegar fræðslumálastjóri var síðast á ferð um þessar slóðir, athugaði hann þetta mál og lagði eindregið til, að skólahúsið yrði bygt, og var það gert eftir sjerstökum teikningum og áætlunum, sem bornar voru undir fræðslumálastjóra.
En alt þetta var gert með það fyrir augum, að skólabygging nyti styrks úr ríkissjóði, eins og fræðslumálastjóri taldi sjálfsagt og enginn efaðist um þá, eftir því, hvernig athugasemdin var skilin. Þetta var reyndar ekkert einsdæmi um Glæsibæjarhrepp, því að fræðslumálastjóri sagði mjer, að um 40 farskólahús væru nú í smíðum, með þetta sama fyrir augum.
En hjer er sjerstaklega um það að ræða, að þetta skólahús hefir verið sniðið alveg sjerstaklega með þetta fyrir augum, en mundi hafa verið bygt alt öðruvísi, ef menn hefðu fyrirfram vitað um þennan skilning laganna, sem þannig ætti að útiloka skólann frá styrk.
Að öðru leyti skal jeg ekki fara út í að rekja málið um heimavistar- og heimangönguskóla, en vil aðeins undirstrika þá sanngirniskröfu Glæsibæjarhrepps, sem hjer er farið fram á, enda ber jeg það traust til háttv. deildar, að hún verði við þeim tilmælum.