07.05.1921
Neðri deild: 64. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1448 í B-deild Alþingistíðinda. (1346)
7. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Pjetur Þórðarson:
Jeg gat um það við 2. umr. þessa máls, að jeg myndi flytja brtt. við 3. umr. við 10. gr. d., og hefi jeg gert það á þskj. 474. Brtt. er um það, að dagpeningar þeirra manna, sem ferðast frá heimili sínu í almenningsþarfir, skuli eigi undanþegnir skattgreiðslu. Jeg held, að það sje sanngjarnt í flestum tilfellum, hvort sem um matseða skoðunarmenn er að ræða, eins og oftast mun vera tilfellið, eða búnaðarfjelagsráðunauta eða aðra menn, að þeir greiði skatt af dagpeningum sínum eins og öðrum tekjum. Jeg sje ekki meiri ástæðu til að draga þá undan skattgreiðslu heldur en annan ávöxt andlegrar eða líkamlegrar iðju manna, þar sem jeg ætlast til, að annar endurgreiddur ferðakostnaður þessara manna sje undanþeginn skattgreiðslu, eins og frv. gerir ráð fyrir. Jeg held, að venja ráði minstu um þessa undanþágu, heldur sanngirni. Jeg ætla annars ekki að orðlengja um þetta, en læt skeika að sköpuðu.
Jeg skal ekki lengja umr. með því að gera grein fyrir atkv. mínu um aðrar brtt. Jeg vil aðeins geta þess, að jeg álít skylt að fara varlega í að fækka gjaldstofnum frv. eða rýra þá. Mjer finst sumir háttv. þdm. sýna of mikla tilhneigingu til þess að fella undan skattinum.
Jeg þori því ekki að lofa atkv. mínu með undanþágutill., því að allir verða og eiga að inna af hendi sinn skerf til almenningsþarfa, hvort sem þeir eru efnamenn eða ekki. Þeir fá það aftur borgað í Ýmsum þeim þægindum, sem hið opinbera gengst fyrir.