20.05.1921
Neðri deild: 75. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1503 í B-deild Alþingistíðinda. (1393)

7. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjármálaráðherra (M. G.):

Mjer sýnist háttv. frsm. (Sv. 0.) ekki kominn í sæti sitt, svo jeg vildi að eins upplýsa um það, að frv. þetta kemur óbreytt frá háttv. Ed., að öðru leyti en því, að aftan við síðustu gr. er bætt, að lögin skuli endurskoðuð fyrir árslok 1923. Mjer finst, eftir atvikum, rjett, að ákvæði þetta fái að standa, og vil leyfa mjer að mælast til, að frv. verði samþ. eins og það er nú.