19.02.1921
Neðri deild: 4. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í B-deild Alþingistíðinda. (150)

16. mál, sala á hrossum

Gunnar Sigurðsson:

Það er að eins örstutt fyrirspurn til hæstv. atvinnumálaráðh.(P. J.) Jeg vildi vita, hvort hann hefir kynt sjer horfurnar á sölu hrossa á næsta ári. hvort kaupendur munu verða þeir sömu, eða hvort stjórnin hefir trygt sjer aðra nýja. Jeg lít svo á, að stjórninni beri að hafa vakandi stiga á markaðinum og vita um markaðshorfur hvenær sem er.