20.05.1921
Neðri deild: 75. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1630 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)
1. mál, hlutafélög
Jakob Möller:
Það mun aðeins vera stutt athugasemd, sem mjer er ætlað að fá að gera. En ef jeg ætti hins vegar að leiðrjetta alt það, sem háttv. frsm. (E. Þ.) hefir misskilið, eða alls ekki skilið, þyrfti jeg lengri tíma. Jeg verð því að sleppa honum og lofa honum óáreittum að snúa atkvæði sínu sannfæringarlaust eftir vilja stjórnarinnar.