16.03.1921
Neðri deild: 24. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1635 í B-deild Alþingistíðinda. (1560)

93. mál, stækkun verslunarlóðarinnar í Bolungarvík

1560Flm. (Sigurður Stefánsson):

Frv. er borið fram samkvæmt símskeyti, sem jeg fjekk frá hreppsnefnd Hólshrepps um þetta efni. Svo stendur á, að norðurtakmörk verslunarlóðarinnar voru ekki skýr í upphafi, en nú hefir þorpið stækkað norður á bóginn, og er hluti þorpsins fyrir utan verslunarlóðina. Nú hefir hreppsnefndin viljað kippa þessu í lag, og vill fá þá breytingu á takmörkum lóðarinnar, að hún sje aukin að norðan. Jeg þarf ekki að fara um málið fleiri orðum; það er svo óbrotið, að jeg hygg, að óþarft sje að vísa því til nefndar.