21.03.1921
Efri deild: 28. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1655 í B-deild Alþingistíðinda. (1625)

81. mál, sala á Upsum

Halldór Steinsson:

Jeg býst ekki við, að neitt sje athugavert við þetta mál, en álít þó rjettara, vegna þess að það hefir ávalt verið venja, að vísa svipuðum málum til nefndar, og legg til, að því verði vísað til landbúnaðarnefndar.