02.04.1921
Efri deild: 33. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1655 í B-deild Alþingistíðinda. (1628)

81. mál, sala á Upsum

Frsm. (Sigurður Jónsson):

Þetta smámál gekk nefndarlaust gegnum Nd. Hjer var því vísað til landbúnaðarnefndar. Eins og sjest á nefndarálitinu leggur nefndin til, að frv. nái fram að ganga, nema 2. gr. Þar er tekið fram, að jörðin skuli metin af óvilhöllum mönnum. En óþarft virðistað taka þetta fram, þar sem stjórnin að sjálfsögðu sjer um, að það verði gert.

Óska jeg svo, að málinu verði vísað til 3. umræðu.