18.03.1921
Neðri deild: 26. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1664 í B-deild Alþingistíðinda. (1647)

63. mál, eignarnám á vatnsréttindum í Andakílsá

Pjetur Þórðarson:

Jeg vil aðeins leyfa mjer að þakka nefndinni, hve vel og rækilega hún hefir tekið í þetta mál.

Jeg viðurkenni, að það er rjett, sem háttv. frsm. (J. Þ.) tók fram, að þessar breytingar hafa verið bornar undir okkur flutningsmenn frumvarpsins, og við urðum ásáttir um að taka þær gildar.

Í raun og veru hefi jeg ekki meira að segja um þetta, en vil leggja það til, að málið gangi sína leið.