06.04.1921
Efri deild: 36. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1665 í B-deild Alþingistíðinda. (1655)

63. mál, eignarnám á vatnsréttindum í Andakílsá

Frsm. (Guðmundur Guðfinnsson):

Jeg þarf ekki miklu að bæta við það, sem í nál. stendur. Nefndin hefir fallist á, að frv. þetta nái fram að ganga með þeim breytingum, er fossanefnd Nd. gerði á því. Þær breytingar eru vegna þess, að ætla má, að samfeld vatnalöggjöf verði orðin að lögum, um það mál þetta kemur til framkvæmda. Breytingarnar eru því gerðar til þess að samræma þetta frv. þeim lögum.

Jeg skal bæta því við, að fossanefnd Nd. hefir ekki með þessum breytingum tekið neina afstöðu til grundvallardeilumála fossamálsins frá 1917 og 1919.