06.04.1921
Efri deild: 36. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1683 í B-deild Alþingistíðinda. (1685)

65. mál, biskupskosning

Frsm. (Sigurjón Friðjónsson):

Eins og nál. ber með sjer, leggur allshn. til, að frv. þetta verði samþ. óbreytt. Byggir nefndin þá niðurstöðu sína á upplýsingum, sem liggja fyrir þinginu og benda í þá átt, að það hafi fylgi meiri hl. prestastjettarinnar, og einkum því, að synódus og meiri hl. hjeraðsfunda leggur til, að frv. í þessa átt verði samþ. Jeg skal að eins benda á, að frv. muni fremur stefna í þá átt að losa um bönd ríkis og kirkju, og getur hver og einn lagt upp úr því það, er honum sýnist.