04.03.1921
Efri deild: 14. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1706 í B-deild Alþingistíðinda. (1744)
59. mál, sóknargjöld
Frsm. (Guðmundur Ólafsson):
Með því að ærnar umræður urðu um frv. þetta, er það var rætt hjer í háttv. deild við 1. umr., og engar brtt. eru fram komnar við það síðan, þá sje jeg ekki ástðu til að fara fleiri orðum um það nú.