11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1951 í B-deild Alþingistíðinda. (2089)

94. mál, hvíldartími háseta á íslenskum botnvörpuskipum

Frsm. meiri hl. (Jón Baldvinsson):

Þetta mál hefir tekið nokkrum smávægilegum breytingum í háttv. Ed., þannig, að aftan við 2. gr. hefir verið bætt 2. málslið. Sjútvn. hefir athugað málið og meiri hl. hennar fallist á frv. og ræður háttv. deild til þess að samþykkja það óbreytt. Jeg sje svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál.