11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1955 í B-deild Alþingistíðinda. (2094)
94. mál, hvíldartími háseta á íslenskum botnvörpuskipum
Jón Auðunn Jónsson:
Jeg hefi, síðan frv. þetta fór úr deildinni, átt tal við ýmsa skipstjóra og háseta, og hafa flestir þeirra talið rjett, að samþyktar hefðu verið till. mínar og háttv. þm. Barð. (H. K.), sem við bárum hjer fram við 2. umr. Bar þessum mönnum saman um, nær öllum, að ekki væri þörf á að takmarka vinnutímann, nema á vetrar- og vorvertíðinni.
Það er algerlega rangt hjá háttv. 2. þm. Reykv. (J. B.), að jeg hafi átt tal um þetta við útgerðarmenn. Jeg áleit einmitt, að skipstjórar og hásetar væru þessum málum kunnugastir, og líklegastir til að ráða málinu til heppilegra úrslita. Mundu allir hafa orðið ánægðir, ef brtt. okkar hefðu verið samþyktar.
Brtt. háttv. Ed. eru ekki efnisbreytingar. Er þar aðeins bætt við, að það skuli ekki talið brot á lögunum, þó að hásetar vinni lengur en áskilið er í lögunum. Þessarar skýringar þurfti eigi, því að auðvitað var hásetum heimilt að vinna lengur, ef þeir sjálfir óskuðu. Hins vegar virðist mjer meiri hætta á því, að hásetar geti orðið ósáttir sín á milli og við skipstjóra, ef ákvæði háttv. Ed. er látið standa óbreytt.
Jeg bind ekki atkvæði mitt um dagskrána, vegna þess að jeg hefi ekki sjeð hana ennþá.