11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1956 í B-deild Alþingistíðinda. (2096)
94. mál, hvíldartími háseta á íslenskum botnvörpuskipum
Frsm. meiri hl. (Jón Baldvinsson):
Jeg vil enn leyfa mjer að skjóta því til háttv. deildar, að þetta hefir verið opinbert umræðumál nú síðustu 2–3 árin, og er því engin ástæða til þess að rannsaka málið betur. Hitt skil jeg vel, að sumir útgerðarmenn muni vilja koma málinu fyrir kattarnef, þó að þeir raunar sköðuðust á því, og mótspyrnan gegn frv. er aðallega komin frá útgerðarmönnum, en ekki skipstjórum.
Eru þeir að vísu þjónar útgerðarmanna, en þeir hafa þó margir látið í ljós, mjer vitanlega, að takmörkunin á vinnutímanum væri heppilegri. Hafa þeir oft undanfarið leiðst til þess að halda áfram meðan nokkur var uppistandandi, og orðið svo algerlega að stöðva veiðarnar á eftir, sökum ofþreytu háseta. Að athuguðum öllum þessum ástæðum, sje jeg enga þörf á að vísa málinu til stjórnarinnar til frekari rannsóknar. Sýnist mjer, að breytingar hv. Ed. á frv. geri það aðgengilegra fyrir þá menn, sem á móti því voru, því að þar er ákveðið, að hásetar megi vinna lengur en til er tekið í frv., en það töldu sumir, að vafasamt væri, hvort þeir hefðu heimild til þess eftir upphaflega frv.