14.05.1921
Efri deild: 70. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2053 í B-deild Alþingistíðinda. (2264)
73. mál, eignarnám á landspildu Bolungarvíkurmölum
Karl Einarsson:
Jeg sje ekkert athugavert við það, þó að stjórninni sje heimilað að selja hreppnum þessar malir. En það sem jeg sje athugavert við þetta, er það, að ekkert ákvæði er um það, að þær lendi ekki aftur í höndum einstakra manna. Jeg vil beina því til nefndarinnar, hvort hún vilji ekki taka inn í þetta frv. líkt ákvæði og í frv. um sölu á Hvanneyri. Nd. ákvað, að kaupstaðurinn fengi kaupin, að undantekinni kaupstaðarlóðinni, og setti ákvæði í frv., sem trygði það, að jörðin kæmist ekki í einstakra manna eign. Gæti þessi deild sett slíkt ákvæði inn í þetta frv. því að það hefir viljað við brenna í kaupstöðum, að lóðirnar væru seldar aftur einstökum mönnum, eða leigðar þannig, að það er sama sem sala, t. d. á erfðafestu með litlum hagnaði fyrir kaupstaðinn.
Jeg er sammála nefndinni um það, að rjett sje fyrir hreppinn að kaupa malir þessar, og því fyr, því betra, og að langt sje frá því, að hreppurinn sje ver settur með að gera lendingarbætur, ef hann kaupir malirnar, heldur þvert á móti. En jeg geri það beint að skilyrði fyrir atkvæði mínu með frv., að nefndin lagi þetta, sem jeg mintist á, og setji inn í þetta frv. líkt skilyrði og jeg nefndi áðan, með söluna á Hvanneyri.