30.03.1921
Neðri deild: 30. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2092 í B-deild Alþingistíðinda. (2285)
100. mál, Ríkisveðbanki Íslands
Jón Auðunn Jónsson:
Jeg skal ekki gera flutning þessa máls nú að deiluefni, enda hefir háttv. frsm. meiri hl. (Jak. M.) kannast við það, að honum væri undarlega farið. En jeg vil snúa mjer að þeim orðum hans, að hjer væri ekki farið fram á eiginlega nýja bankastofnun, heldur breytt fyrirkomulag á þeim stofnunum, sem til væru. En hvað er það þá, sem veldur því, að afgreiða þurfi málið einmitt nú? Og ef háttv. frsm. (Jak. M.) er mjer einnig að mestu sammála í því, að brjefasala bankans muni ganga fremur treglega, hvað bætir þá stofnun bankans nú úr ástandinu? Og þegar þar við bætist svo, að margnefndir sjóðir eiga að vera aðalveltufje bankans, má ekki búast við mikilli aukningu lánsmöguleikanna frá því, sem nú er, þegar unnið verður að því nær eingöngu með sama fjenu.
Svo vil jeg víkja lítillega að atriði, sem jeg gleymdi áðan, en háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) tók rjettilega fram, að leggja ætti sjerstaka áherslu á það að veita landbúnaðinum hagkvæm lán til jarðræktar. Eigi að stofna veðbankann, á að nota hann fyrst og fremst til þess að styðja framkvæmdir í ræktun landsins, en ekki til þess að velta eldri lánum, t. d. húsa- og jarðakaupa, enda mundu 1 eða 2 miljónir þá hrökkva skamt.
Loks skal jeg svo svara háttv. frsm. meiri hl. (Jak. M.), þar sem hann talaði um það, hvort ekki mundi betra að fá nú föst lán með 61/2% heldur en 8%. Því er auðsvarað. Það er betra að borga 8% í 2–4 ár, og fá síðan 41/2 eða 5% lán til 28 ára, en að borga í 30 ár. Ennfremur, ef ekkert fje er til í bönkunum nú til útlána, verður ekkert fje í veðbankanum, þó hann verði stofnaður nú.
Sami háttv. þm. (Jak. M.) talaði um það, að biðin gæti orðið dýr í þessu máli. En sannleikurinn er nú sá, að hún kostar ekki neitt. Sömu sjóðirnir, sem fyrir hendi eru og eiga að vera aðalstofn bankans, halda áfram að starfa hvort eð er.
Jeg verð því enn að vera á sömu skoðun og áður um það, að ekki beri að afgreiða málið nú, vegna þess, að bankastofnunin mundi verða afar kostnaðarsöm, en hins vegar ekki ná tilgangi sínum, eins og jeg hefi áður fært full rök fyrir.