19.04.1921
Neðri deild: 47. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2188 í B-deild Alþingistíðinda. (2337)

100. mál, Ríkisveðbanki Íslands

Bjarni Jónsson:

Jeg vil aðeins bera af mjer það ámæli, að jeg hafi misskilið hv. þm. N.-Ísf. Það var alt rjett, sem jeg sagði, en þar sem nú flokksbróðir hans ætlar að fegra hans orð, þá lýsir það vel hjartalagi hans. Jeg þoli vel, að þessir menn segi, að jeg hafi ekki vit á þessu máli, á meðan þeir geta ekki sýnt, að þeir hafi vit á því sjálfir.