31.03.1921
Efri deild: 31. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í B-deild Alþingistíðinda. (245)

32. mál, friðun rjúpna

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Hv. Nd. hefir gert þá breytingu á frv., að hún hefir lengt friðunartíma rjúpnanna til 1. okt. 1924, eða um 1% ár. Landbúnaðarnefnd hefir athugað þessa breytingu og getur fallist á, að þessi lenging friðunartímans geti verið nauðsynleg, vegna þess, hve mjög rjúpum hefir fækkað, bæði af völdum manna og náttúrunnar, síðastl. ár. Nefndin ræður því hv. deild til að samþ. frv. óbreytt.