20.05.1921
Efri deild: 77. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2424 í B-deild Alþingistíðinda. (2570)

135. mál, heimild til lántöku fyrir ríkissjóð

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg hygg þá, að enn minni ástæða sje fyrir háttv. 2. landsk. þm. (S. E.) að þakka sjer eða peningamálanefnd þetta frv. Eins og kunnugt er, hefir sú nefnd legið með þetta mál í 3 mánuði, án nokkurra framkvæmda — en þó var það loks maður utan nefndarinnar, sem kom fram með frv. Þurfa því háttv. nefndarmenn ekki að láta stórt af afrekum sínum í þessu máli.