14.05.1921
Neðri deild: 70. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2467 í B-deild Alþingistíðinda. (2610)
122. mál, útflutningur og sala síldar
Atvinnumálaráðherra (P. J.):
Jeg vildi fyrirbyggja misskilning viðvíkjandi ummælum mínum um brtt. á þskj. 607. Jeg hefi í sjálfu sjer ekki á móti 5. liðnum. En, jeg býst við, að hann yrði til þess að vekja óánægju þeirra manna, sem við lögin eiga að búa. Sú tilhögun, að láta stjórnina annast söluna, mun hafa átt erfitt uppdráttar hjá þeim, sem frv. sömdu. Jeg veit, að sú stefna er ekki vinsæl meðal síldarútgerðarmanna, að láta stjórnina eða hið opinbera vera að vasast í sölu afurðanna; þeir óttast, að það kunni að draga dilk á eftir sjer.