09.04.1921
Neðri deild: 39. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í C-deild Alþingistíðinda. (2777)

83. mál, stofnun dócentsembættis

Frsm. (Bjarni Jónsson):

Jeg get ekki látið undir höfuð leggjast að vísa á bug ásökunum og aðdróttunum hv. 1. þm. Árn. (E. E.) um yfirvarpsástæður. Það getur verið, að hann telji sjer sæma að brigsla mjer um slíkt. Hitt get jeg ekki þolað, að heimspekideild háskólans sje borið slíkt á brýn, og jeg held, að hv. þm. (E. E.) væri hollara að fara heim og læra betur, áður en hann setur henni fyrir. Það er vitað, að hv. þm. (E. E.) hefir ekkert vit á þessu máli móts við hana.