13.05.1921
Neðri deild: 69. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í C-deild Alþingistíðinda. (2833)

126. mál, laun embættismanna

Frsm. (Magnús Pjetursson):

Eins og jeg gat um við 2. umr., þótti okkur nefndarmönnunum rjettara að gera brtt. við 7. gr., svo ekki gæti neinn misskilningur orðið um það, hverjir þeir menn væru, sem ætlast væri til að fengju launabætur. Við höfum nú gert þetta, eins og sjá má af þskj. 593, svo nú ætti ekki lengur að geta orkað tvímælis um það.

Jeg sje svo enga ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál.