03.05.1921
Neðri deild: 61. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í C-deild Alþingistíðinda. (2849)
113. mál, sýslumaðurinn í Skaftafellssýslu megi fela öðrum sérstök störf
Flm. (Þorleifur Jónsson):
Jeg hefi ekki á móti því, að frv. verði aðeins bundið við Skaftafellssýslu, og getur þá hv. nefnd breytt því í þá átt, ef henni sýnist svo.
Jeg er alveg á móti því, að manntalsþing sjeu feld niður. Það er nauðsynlegt, að almenningur geti átt kost á að fá úrskurði og leiðbeiningar ýmsar á manntalsþingunum hjá sýslumönnunum.
Og eins og jeg hefi tekið fram áður, á ekki að hlífa sýslumönnum við manntalsþingahaldi og þess háttar, nema sjerstök forföll banni.