21.03.1921
Neðri deild: 28. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í C-deild Alþingistíðinda. (3130)
98. mál, vegir
Þorsteinn Jónsson:
Jeg skal heldur ekki lengja umr., en vil aðeins taka það fram, út af orðum hæstv. atvrh. (P. J.), að mjer virðist, sem stjórnin hefði átt að leggja vegamálarannsóknina fyrir vegamálastjóra, og fá till. hans um það efni, hvort sem hægt hefði verið að hrinda nokkru verklegu í framkvæmd nú þegar, eða ekki. Fyrst þarf löggjöfin að vera til um vegina, áður en lengra fer.
Svo vil jeg mótmæla því, að samgmn. hafi aðeins fjallað um samgöngur á sjó. Meðan jeg hefi átt sæti í nefndinni hefir hún fjallað um öll samgöngumál, þó að hins vegar hafi verið leitað umsagnar fjárveitinganefndar, þegar um fjárframlög hefir verið að ræða, eins og venja annara nefnda er. Þetta mundi sjálfsagt einnig verða gert hjer, ef málið leiðir til fjárútláta á þessu þingi, og þá gefst háttv. þm. Str. (M. P.) einnig tækifæri til þess, að fjalla um málið.
Viðvíkjandi orðum hv. 1. þm. Árn. (E. E.) um þær kröfur, sem hann mundi koma með, ef þetta yrði samþ., virðist mjer það ætti engin áhrif að hafa á þetta sanngjarna mál, enda er það óviðkunnanlegt, að mega ekki benda á sanngjarnar rjettlætiskröfur vissra landshluta, svo að ekki komi í hópum hótanir frá þm. annara kjördæma. (E. E.: Þetta er ekki hótun). Jú, að svo miklu leyti, sem það gæti orðið til þess að hnekkja framgangi málsins, þó aðstæðurnar sjeu annars ekki sambærilegar.