15.04.1921
Neðri deild: 44. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 582 í C-deild Alþingistíðinda. (3208)

102. mál, bann á innflutningi á óþörfum varningi

Jakob Möller:

Aðeins örfá orð. Hæstv. forsrh. (J. M.) þótti það einkennilegt, ef ekki væri um algert afnám innflutningshaftanna að ræða með þessu frv. Jeg skal nú alls ekki taka honum það illa upp, þótt hann hvorki hafi lesið greinargerð frv., þar sem þetta skýrt er tekið fram, nje heldur hlustað á ræður þær, sem jeg hefi haldið hjer um málið.

En hins vegar þarf hæstv. forsrh. ekki að ganga þess dulinn, að frá minni hálfu er hjer að ræða um algert afnám viðskiftahaftanna.