15.03.1921
Efri deild: 23. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 754 í C-deild Alþingistíðinda. (3328)

156. mál, erfingjarenta

Björn Kristjánsson:

Jeg þakka nefndinni fyrir brtt., sem hún hefir komið fram með á frv. Jeg gætti þess ekki að bera mig saman við hana um breytingar á frv., en þar sem þær hafa farið svo saman, þá tek jeg mínar 2 fyrri aftur, en hvað snertir b-lið 3. gr„ þá hefir háttv. nefnd sagt sig meðmælta henni.