16.03.1921
Neðri deild: 24. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í D-deild Alþingistíðinda. (3359)

89. mál, rannsókn á höfninni í Súgandafirði

Atvinnumálaráðherra (P. J.):

Jeg er ekki viðbúinn að svara þessari fyrirspurn sem stendur. Vitamálastjórinn hefir öll plögg Kirks heitins, og jeg mun þar geta fengið upplýsingar. Sjálfur veit jeg ekki, hvort þál. hefir komið til framkvæmda; það hefir þá líklega verið gert á Fálkanum, því hann var beðinn að rannsaka það. En jeg skal athuga þetta nánar.