09.04.1921
Efri deild: 39. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í D-deild Alþingistíðinda. (3370)

89. mál, rannsókn á höfninni í Súgandafirði

Halldór Steinsson:

Af því að till. þessi hefir í för með sjer kostnað fyrir ríkissjóð, þykir mjer viðkunnanlegra, að nefnd fái till. til athugunar, og leyfi mjer að leggja til, að málinu verði vísað til allsherjarnefndar.