15.04.1921
Neðri deild: 44. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í D-deild Alþingistíðinda. (3389)

103. mál, mat á aðfluttum kornvörum

Forsætisráðherra (J. M.):

Þetta lá í orðum hv. þm. (H. K.), hvað sem hann kann að hafa ætlað að segja, og var nema eðlilegt, að jeg tæki því svona, og er það enginn misskilningur, því jeg hefi oft áður fundið að þessu sama. (B. J.: Og það með rjettu.) Já, það geri jeg altaf, þó að hv. þm. viðurkenni það ekki altaf eins og nú.