03.05.1921
Neðri deild: 61. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í D-deild Alþingistíðinda. (3432)

115. mál, hrossasala innanlands

Forseti (B. Sv.):

Nokkrir þm. hafa nú þegar kvatt sjer hljóðs í þessu máli, og sýnist mjer því rjettast, annað hvort að hætta umræðum þegar, eða þeim verði þá áfram haldið til úrslita. Þó má það vel vera, að hv. þm. Borgf. (P. O.) fái að segja örfá orð, ef hann leggur mikið kapp á.