17.03.1921
Neðri deild: 25. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 574 í D-deild Alþingistíðinda. (3779)
87. mál, vantraust á núverandi stjórn
Forseti (B. Sv.):
Samkvæmt 44. gr. þingskapanna getur þingmaður skotið úrskurði forseta um undanfærslu sína við atkvæðagreiðslu, þá er nafnakall fer fram, undir atkvæði deildarinnar, og getur deildin þá leyst þingmanninn undan þingvíti, þótt hann neiti að greiða atkvæði. Þetta á við hvern einstakan þingmann, en ekki heilan flokk manna, sem hefir tekið sig saman um að skorast undan að taka þátt í atkvæðagreiðslu. Hjer liggur fyrir krafa frá einum hv. þm., 2. þm. Skagf. (J. S.), um það, að úrskurði mínum um undanfærslu hans sje áfrýjað til deildarinnar, og mun jeg verða við þeirri kröfu, samkv. ákvæðum 44. gr. þingskapa.