18.03.1921
Neðri deild: 26. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 579 í D-deild Alþingistíðinda. (3797)

87. mál, vantraust á núverandi stjórn

forseti (B. Sv.):

Sökum þess, að síðasti fundur í deildinni stóð svo lengi, alt fram á 4. stundu eftir miðnætti, þá hefir ekki unnist tími til að rita gerðabók svo snemma, að hún gæti legið frammi þann tíma, sem þingsköp mæla fyrir, áður en fundur byrjaði. Verður því að fresta fundi þangað til gerðabókin hefir legið frammi lögskipaðan tíma.