12.05.1921
Neðri deild: 68. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 604 í D-deild Alþingistíðinda. (3863)

125. mál, eignarumráð ríkisins yfir vatnsréttindum í Soginu

Sveinn Ólafsson:

Aðeins stutt athugasemd. Mjer skildist það á hæstv. atvrh. (P. J.), að hann líti svo á, að frv., sem hjer var samþykt, hefði í sjer fólgin ákvæði, sem færu í bága við þessa þál. Þetta get jeg ekki fallist á. Mjer finst einmitt fremur ástæða til að samþykkja þál., ef frv. gengur fram. Það mætti næstum líta svo á, að ef þessi þál. verður nú feld, þá sje þar með þál. frá 1919 úr gildi numin. Tel jeg því þetta misskilning hjá hæstv. atvrh. (P. J.).