12.05.1921
Neðri deild: 68. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 606 í D-deild Alþingistíðinda. (3866)
125. mál, eignarumráð ríkisins yfir vatnsréttindum í Soginu
Flm. (Eiríkur Einarsson):
Fyrirspurninni hefi jeg í rauninni svarað áður. Jeg hefi tekið það fram, að fyrir mjer væri það ekkert höfuðatriði, hvort kauprjettindum væri náð fyrst; það væri hægt að gera það jöfnum höndum. (J. Þ.: Ekki eftir till.). Jeg álít, að rannsóknin þurfi ekkert að dragast fyrir útvegun á rjettinum. Jeg get ekki sjeð annað en að þeir hv. þm., sem samþ. frv., geti einnig látið till. að minsta kosti ganga til 2. umr. Það má þá breyta henni við aðra umr. ef hv. þm. þykir þörf á því, t. d. að flýtt verði sem mest að útvega eignarráðin og rannsókn byrji jöfnum höndum. Till. og frv. fela þó að nokkru leyti það sama í sjer, þótt þau vilji ekki haga því að öllu leyti eins, og er jeg ekki í vafa um, að till. fer þar í rjettara horf.