18.05.1921
Neðri deild: 72. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 731 í D-deild Alþingistíðinda. (3910)

108. mál, símagerð og póstgöngur í Dalasýslu og Barðastrandarsýslu

Magnús Pjetursson:

Jeg endurtek það, að það sjeu ósannindi, að jeg eigi upptökin að því, að þessi breyting komst á. Hv. þm. Barð. (H. K.) sagði, að jeg hefði sagt, að Strandamenn hefðu ekki hag af því, en nú væri það deginum ljósara, úr því jeg sje á móti þessu. En þessi hv. þm. (H. K.) getur ekki skilið það öðruvísi en að maður hugsi aðeins um sitt kjördæmi.