06.04.1921
Efri deild: 36. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í B-deild Alþingistíðinda. (501)

23. mál, stofnun og slit hjúskapar

Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):

Það var ekki meining mín að gera neina breytingu á þessu. Sá, sem framkvæmir vígsluna, ber ábyrgðina á því, að hjer sje alt í lagi. Og við litum svo á, að hjónaefni fái undanþágu hjá þeim valdsmanni, sem gæfi þau saman.