02.05.1921
Neðri deild: 60. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 390 í B-deild Alþingistíðinda. (598)

6. mál, einkasala á tóbaki

Hákon Kristófersson:

Að eins nokkur orð til að gera grein fyrir atkv. mínu.

Jeg fylgdi þessu frv. þegar það fór hjeðan úr þessari deild, en nú lítur það talsvert öðruvísi út, og með tilliti til þeirra breytinga, treysti jeg mjer eigi til þess að greiða því atkvæði mitt.