14.04.1921
Efri deild: 43. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 438 í B-deild Alþingistíðinda. (643)

47. mál, tollalög

Forseti (G. B.):

Í samráði við háttv. frsm. (B. K.) þessa máls, leyfi jeg mjer að taka málið af dagskrá og fresta því, þar til sjeð er, hvernig fer um tvö skyld mál, sem háttv. deild hefir til meðferðar, sem sje: frv. til laga um einkasölu á tóbaki og frv. til laga um einkasölu á áfengi.