15.03.1921
Neðri deild: 23. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (665)

37. mál, varnir gegn berklaveiki

0665Forsætisráðherra (J. M.):

Mjer þótti leitt að heyra, að hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) skyldi þykja það svo mjög ilt, að stjórnin tók það ekki nærri sjer, að kornvörufrv. var felt í Ed. En jeg get því miður ekki að því gert. Þetta er nú svona, og þm. (Jak. M.) verður því að sitja með það sár.