10.05.1921
Efri deild: 66. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2494 í B-deild Alþingistíðinda. (69)

Traustsleitun stjórnarinnar í efri deild

Forsætisráðherra (J. M.):

Það einasta, sem hjer er um að ræða, er þetta, hvort háttv. deildarmenn vilji nú, eins og sakir standa á þessu augnabliki, að stjórnin fari frá eða ekki. — Spurningin er afareinföld og ætti að vera skiljanleg hverjum manni.