02.04.1921
Neðri deild: 33. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í B-deild Alþingistíðinda. (766)
30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921
Björn Hallsson:
Þótt jeg bæti örfáum orðum við allan þann orðaelg, sem hjer er í þessari háttv. deild, þá er það ekki nema eins og dropi í hafið.
Jeg skal þá fyrst snúa mjer að brtt. samgmn. á þskj. 181, síðasta lið, sem er styrkur til Eimskipafjelags Íslands. Það er allmikið búið að tala um þennan styrk, og hafa verið allskiftar skoðanir um hann.
Jeg verð fyrst að vita, hversu margir staðir það eru, sem skipið kemur á, svo veruleg bót verði að þessum ferðum. Jeg er í vafa um, hvort betra er, flóabátar eða þessar Goðafossferðir. En samt held jeg hallist í þetta sinn fremur að styrk til skips, sem siglir eftir fastri áætlun frá útlöndum og svo strandferðir með landi fram með mörgum viðkomustöðum. Sá kostur fylgir því, að þá losna menn við þessar illræmdu og kostnaðarsömu umskipanir.
En það, sem líka mælir með þessum styrk til Goðafossferðanna, er það, að jeg sje, að það verður ódýrara fyrir landssjóð en að kosta 1 Austfjarðabát og 2 Norður- og Vesturlandsbáta. En nú verður að gá að krónunum; það er ekki svo mikið til af þeim.
Jeg hefi undir umræðunum sjeð áætlun skipsins, og sje, að viðkomustaðir eru allmargir og ferðirnar eru 4. Og þótt það sjeu að vísu margar hafnir, sem skipið kemur ekki á, þá er hægt að bjarga þeim nokkuð við með Sterling, sem samkvæmt áætlun sinni kennir á flestar hafnir kring um land.
Þeir, sem kunnugir eru á Austfjörðum, vita vel, að það eru allmiklar samgöngur á milli Hornafjarðar og Austfjarða, og er því þörf á, að bætt sje úr skipaferðum þar á milli.
Loks vil jeg með örfáum orðum víkja að einum lið á listamannastyrknum á þskj. 129, er enginn háttv. þm. hefir minst á, nema háttv. frsm. (M. P.). Maðurinn, sem fer fram á styrk, er úr mínu kjördæmi og heitir Valdimar Sveinbjarnarson. Ástæður fyrir styrkveiting til hans eru margar. Fyrst og fremst er faðir hans fátækur barnamaður og er alls ekki fær um að styrkja hann neitt, og í öðru lagi hefir leikfimikennari Björn Jakobsson sagt, að þörf væri á svona manni, því að hann kemst ekki yfir kensluna hjer, en um aðra er ekki að gera. Þetta ættu að vera nægar ástæður til þess, að háttv. deild sjái ástæðu til að hlaupa undir bagga með pilti þessum, ef nokkur námsstyrkur er veittur á annað borð.
Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða um aðrar brtt.; atkvgr. sker best úr öllum þrætum.