13.04.1921
Neðri deild: 42. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 706 í B-deild Alþingistíðinda. (805)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg stend aðeins upp til þess að viðurkenna, að það er alveg rjett, sem háttv. frsm. fjvn. (M. P.) sagði um innihald brjefs atvinnumálaráðherra. Hafði jeg ekki lesið brjefið alt, og bið afsökunar á þessu mishermi mínu.

Um orðabókina held jeg fast við, að Geir Zoega fekk styrk til útgáfu bókarinnar, en ekki fyrir starf sitt við samningu hennar, og er það verulegur munur.