06.04.1922
Efri deild: 38. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 895 í B-deild Alþingistíðinda. (1037)

82. mál, útflutningsgjald af síld o. fl.

Karl Einarsson:

Jeg lít svo á, að eigi geti komið til mála, að háttv. deild fari að brjóta stjórnarskrána með því að leyfa ekki frv. þessu að koma til umræðu, því að þingmönnum er heimilt að koma fram með frumvörp á hvaða tíma sem er, meðan þing stendur.