17.03.1922
Neðri deild: 25. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í C-deild Alþingistíðinda. (1132)

35. mál, bæjarstjórn í Reykjavík

Frsm. (Jón Þorláksson):

Jeg hefi litlu við að bæta það, sem jeg hefi áður sagt, og finn ekki ástæðu til þess að gera miklar athugasemdir við ræðu hv. 2. þm. Reykv. (J. B.), en þó vil jeg gera þá leiðrjettingu við greinargerð hans, að frv. þessu er á alt annan veg farið en frv. því, sem bæjarstjórnin flutti. Hvað 21 árs aldurinn snertir, vil jeg láta þess getið, að till. um hann var feld í bæjarstjórninni í fyrra. Mun jeg svo láta útrætt um málið.