10.03.1922
Neðri deild: 19. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í C-deild Alþingistíðinda. (1169)

45. mál, frestun á framkvæmd laga um fræðslu barna og laga um skipun barnakennara og laun þeirra

Magnús Jónsson:

Jeg vil gera það að till. minni, að máli þessu verði vísað til mentmn. Jeg fæ ekki annað sjeð en að þetta heyri undir verksvið hennar, og því sjálfsagt að fá umsögn hennar um það, úr því að hv. fjvn. hefir ekki leitað hennar álits áður en hún bar málið fram.