18.02.1922
Neðri deild: 4. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í C-deild Alþingistíðinda. (1351)

8. mál, kennaraskóli

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða meira um málið að þessu sinni, geri ráð fyrir, að hv. nefnd athugi bæði frv. og till. hv. þm. Dala. (B. J.).

En eigi að fara að gera stórfeldar breytingar á gildandi skipulagi, teldi jeg rjettara að láta málið bíða, því að það mundi lengja þingtímann ærið.