21.03.1922
Neðri deild: 28. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 383 í C-deild Alþingistíðinda. (1407)

44. mál, afnám kennarastóls í klassískum fræðum

Forsætisráðherra (S. E.):

Með því að frv. þetta var sent háskólaráðinu til athugunar og umsagnar, og svar þess er ekki komið enn, vil jeg mælast til þess, að mál þetta verði tekið út af dagskrá.